Uppskrift
Landamerki Hrísgerðis í Hálshreppi
Að sunnan, þar sem Ljótsstaðaland tekur við: eftir hinu svokallaða Ljótsstaðagili neðan frá Fnjóská
upp á Heiðarbrún, og þaðan beint í vestur í vörðulínu þá, er skiftir landi heiðarinnar móts við
Svalbarðsströnd. Að norðan ráða hin sömu merki, sem tilgreind eru að sunnan við Víðivelli, neðan frá
Fnjóská uppá heiðarbrún, beina stefnu í áðurnefnda vörðulínu. Að austan ræður Fnjóská.
Espihóli 16. apríl 1884.
Jón Sigfússon
Fyrir hönd eiganda Ljótsstaða Jóhann Fr. Jóakimsson.
Lesið á manntalsþingi að Hálsi 11. júní 1887 og innf. í landamerkjabók Þingeyarsýslu No
. 152.
B. Sveinsson
Borgun: Þingl. kr. 0,75
Bókun kr. 0,25
kr. 1,00
Ein króna – Borg. B.Sv.