Uppskrift
Landamerki Vatnsleysu í Hálshreppi.
Að norðan, þar sem Dælisland tekur við: úr Neðrahringshorni niður við Fnjóská beina stefnu upp í
Hörðuvallagil og þaðan beina stefnu uppá heiðarbrún og þaðan beint vestur í Hrossadalslæk.
Að sunnan ráða hin sömu landamerki og tilgreind eru að norðan við Víðuvelli vestur í Hrossadalslæk.
Að austan ræður Fnjóská merkjum.
Espihóli, 16. apríl 1884.
Jón Sigfússon
Samþykkur Gísli Ásmundsson.
Lesið á manntalsþingi að Hálsi 18. Júní 1884.
B. Sveinsson
Borgun: Þingl. 75 aur
Bókun 25 aur
1,00 kr.
– Ein króna – B.Sv.