Landamerki Hallgilsstaða í Hálshreppi

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
Landamerki Hallgilsstaða í Hálshreppi 
Að sunnan til móts við Fornastaði ræður Syðragil í fjallinu og bein lína vestur frá því, eftir 
„Markbrekkuhólum“ til „Þingmannalækjar“, að vestan ræður lækurinn til móts við Hálsland, þar til 
hann fellur í Fnjóská, ræður svo mið Fnjóská gegnt Miðrönd og Grundargili að utan til móts við Veisusel 
á fjall upp. 
Auk þessa tilheyra Hallgilsstöðum allar slægjur utan við Miðrönd og Grundargil til næsta lækjar sunnan 
við Veisuselstún. 
Ljósavatni, 28. Marz 1884. 
pr. Jón Austmann 
Sigurður Guðnason 
Jón Jónsson (ábúandi Fornastaða) 
Kristján Ingjaldsson (ábúandi Hallgilsstaða) 
Elín Bjarnadóttir (ábúandi Veisusels.) 
[Ritað með öðrum lit og annarri skrift] 
(Ítakinu lýst samkv. áskorun 20.5.1953, hinn 6. jan 1954. JS.) 
Lesið á manntalsþingi að Hálsi 18. Júní 1884. 
B. Sveinsson 
Borgun: Þingl. 75a 
Bókun 25a 
1,00 kr. 
– Ein króna – Borgað B.Sv.