Uppskrift
Landamerkjaskrá fyrir jörðinni Hrófá.
Að innan móts við land jarðarinnar Víðidalsár: Skammt fyrir innan bæinn á Hrófá gengur
fram að sjónum hæð eða holt, sem nefnist Galtar
höfði, úr vörðu á honum framan verðum er
bein sjónhending sunnan til við Innra varpssker það, sem liggur undir Hrófa yfir Skerflögu
lága fram og inn af Hrófárvarphólmanum, er nefnist Djúpflaga og beint í Reykjanesið
hinumegin Fjarðarins. Á leið fram til fjalls eru landamerki úr áðurgreindri vörðu eptir vörðum
fram holtin þvert yfir mýri þá, er liggur frá Hrófá upp að Víðirdalsá í læk er rennur úr
Grenshamraláginni og eptir þeirri lág, og svo fram holtin eptir vörðum í grænt dý í fremri
Hafursflóa framanverðum, þaðan eptir vörðum fram holtin og eptir
Skógarlandshlíðarbrúninni, yfir Skógarlandsborgina og í vörðu á stórum steini fram við djúpa
lág er gengur yfir undir Tóptardalsá og nefnist Álptaskarð, úr áðurgreindri vörðu sjónhending
í vörðu á brúninni á Urðarhjalla svonefndum fremst í Álptatungum og norðan til við
Tóptardal og þaðan sjónhending í merkjagarð við Mjóadalsá og eptir því sem sú á ræður
suður á hraun móts við land jarðarinnar Bæjar í Reykhólasveit.
Að utan greinir áin Hrófá Hrófárland frá landi jarðarinnar Tungugrafar í
Kirkjubólshreppi fram þangað sem Tröllatunguá rennur í Arnkötludalsá, þá skilur
Arnkötludalsá Hrófarland frá Tröllatungu og Arnkötludalslandi framan að svonefndu
Sauðgili. Þá skilur Sauðgil Hrófárland frá Arnkötludalslandi uppí Sauðdal og svo greinir efri
brúnin á Sauðdal og brúnir á Arnkötludal eptir sem vötnum hallar suður á hraun Hrófárland
frá Arnkötludals og Vonarholtslandi og eptir hrauninu norður að landamerkjum Hrófár og
Víðidalsár, eptir því sem vötnum hallar, liggur land jarðarinnar Hrófár móts við land
jarðarinnar Bæjar í Reykhólasveit. Þess skal getið að kirkjan í Tröllatungu á ítak (áttunda
hluta) í eggveri á Hrófá og á rifhrísi í tilteknum parti af Hrófárlandi, nefnil. frá Ásendalæk að
Fauskhólagili.
Hrófá 15. maí 1888.
Sem eigandi og vegna hinna annara eigenda jarðarinnar Hrófár, Jón Ívarsson.
Framan og ofan
skrifuð landamerki samþykkjum við: Vegna jarðarinnar Víðirdalsár, Kristín
Gísladóttir (handsalað).
Framanskrifuðu landamerkjabrjefi er jeg samþykkur að því er snertir landamerki jarðanna
Tungugrafar, Tröllatungu og Arnkötludals og ítak það (ɔ: áttung úr eggveri og áttung úr
hrísrifs í skógarlandi) er Tröllatungukirkja á í Hrófá.
Þ.t. Tröllatungu 26/5 1889.
Arnór Árnason
Lesin upp fyrir manntalsþingsrjetti að Hrófbergi 14. septembermánaðar 1889 og ritað inn í
landamerkjabók Strandasýslu undir tölulið 24.
Vitnar SESverrisson
Gjald:
Fyrir þinglestur kr. 75a
Fyrir bókun kr. 25a
Er
ein króna 1 kr. SESverrisson