Endurrit: Landamerki að utan milli Ásgrímsstaða og Hóls

Nr. 13/1890,

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
 
Landamerki að utan milli Ásgrímsstaða og Hóls eru í miðjan svokallaðan aur, sem ræður austur í 
Jökullæk, að austan og neðan ræður Jökullækur fram í Markhólma, sem er í miðjum Jökullæk. Þar 
þvert yfir lækinn eiga Ásgrímsstaðir heyskap allan allt fram í þúfu þá, sem liggur mitt í læknum, út úr 
hagaodda austarlega, að sunnan og framan úr Álptarauga upp eftir miðjum Álftalæk allt í 
Ásgrímsstaðavatn og svo rétta línu í Sortukeldu, og frá Sortukeldu fram eptir miðjum Merkidal og svo 
langt fram þar til fyrst sést maður á hesti af Ásgrímsstaðahlaði, þá framan kemur Bóndastaðaveg og 
svo réttlínis norður yfir í Vatnalækjarós hinn ytri og þaðan réttlínis yfir Víðastaðavatn og í Marksteina 
að vestan og svo að norðan í Snorravörðu og rétt út í stein þann, sem kallast Maður: Þaðan 
sjónhending í aur þann, sem fyrst er um getið. 
Að því leyti er framanskrifuð landamerkjalýsing snertir Hrollaugsstaði, samþykki ég hana að mínu 
leyti 
Páll Pálsson – prestur til Hallormsstaður 
Samþykkur B. Jónsson 
Magnús Jónsson á Hrollaugsstöðum 
Samþykkur Sigurður Gunnarsson 
Fyrir hönd skólastjóra samþykkir Halldór Magnússon (einn í skólastjórn) 
Þorlákur Gíslason samþykkir 
Samþykkt Ketill Þorsteinsson 
Gísli Gíslason samþykkir 
Arnfinnur Þorsteinsson samþykkt 
Jón Eiríksson samþykkir 
Sigurður Bjarnason samþykkir 
Magnús Einarsson samþykkir 
Björn Jónsson samþykkir 
Björn Jónsson Ásgrímsstöðum samþykkir. 
Þinglýst á Hjaltastaðarmanntalsþingi 14. júní 1890 og innfært í landamerkjabók Norður-Múlasýslu bls. 
116-117. 
Einar Thorlacius 
Rétt endurrit staðfestir 
Seyðisfirði 26. ágúst 1976 
Erlendur Björnsson 

[bls. án nr.] 
Bæjarfógeti Seyðisfjarðarkaupstaðar 
Sýslumaður Norður- Múlasýslu 
Seyðisfirði 
29. apríl 1977 
Eftir móttöku bréfs yðar, herra oddviti, dags. 17. þ.m., sendi eg yður hér með ljósrit, sem eg var að 
reyna að gera úr landamerkjabók um landamerki Jórvíkur. 
Rifnað hefir af blaði í bókinni, og er því óljóst, hvað sagt er um Þrætubakka. Úr þessu reyndi eg að 
bæta með því að senda einnig afrit af merkjum Kóreksstaða og af skiptum milli Jórvíkur og 
Jórvíkurhjáleigu. Síðastnefnt skjal hefir þó líklega takmarkað gildi, með því að það er ekki undirritað 
af eiganda Kóreksstaða. 
Ég sé, að þegar byggingarbréf hefir verið gert um Jórvík 1938 er landamerkjalýsing Jórvíkur 
ófullkomin af sömu ástæðum, og hefir bókin rifnað fyrir þann tíma. 
Virðingarfyllst 
Erlendur Björnsson 
Oddviti Hjaltastaðahrepps, 
Rauðholti. 

[bls. án nr.] 
Landamerki Jórvíkur og aðliggjandi jarða: 
1. Milli Jórvíkur og Hjaltastaðar: Úr garðlagi á austari Selfljótsbakka yfir Miðhala og Húsklett beint 
yfir Magnúsarvörðuás, utan undir Kolluhrauni, yfir Miðenni og Lækjardal utanundir Kýrhöfða 
eptir gömlu garðlagi í Sauða[...]namýri að Staðará. 
2. Milli Kóreksstaða og Jórvíkur [...]á út í Selfljót, nema allir Þrætubakkar fylgja [...] austan á. 
3. Milli Klúku og Jórvíkur ræður Selfljót. 
4. Milli Hrollaugsstaða og Jórvíkur ræður Selfljót. 
Björn Þorláksson prestur Hjaltastað. 
Björn Einarsson bóndi Kóreksstöðum 
Þorkell Bjarnason bóndi á Klúku. 
Magnús Jónsson, Magnús Einarsson bændur á Hrollaugsstöðum 
Jórvík 20. júní 1884 
Eiríkur Vilhjálmsson 
Lesið fyrir manntalsþingsrétti að Hjaltastað, 2. júlí 1884 og innfært í landamerkjabók Norður 
Múlasýslu, bls. 51-52 
Eiríkur Thorlacius 
Gjald til landsjóðs: 
a, þinglýsing kr. 0,75 
b, bókun kr. 0,25 
= kr. 1,00 – ein króna. 
ETh. 

[bls. án nr.] 
Landamerki Jórvíkur og aðliggjandi jarða. 
1. Milli Jórvíkur og Hjaltastaðar: Úr garðlagi á austari Selfljótsbakka yfir Miðhala og Húsklett, 
beint yfir Magnúsarvörðuás utan undir Kolluhrauni, yfir Miðenni og Lækjardal utanundir 
Kýrhöfða eptir gömlu garðlagi í Sauða[...]namýri að Staðará. 
2. Milli Kóreksstaða og Jórvíkur [...]á út í Selfljót, nema allir Þrætubakkar fylgja [...] austan á. 
3. Milli Klúku og Jórvíkur ræður Selfljót 
4. Milli Hrollaugsstaða og Jórvíkur ræður Selfljót. 
Björn Þorláksson prestur á Hjaltastað. 
Björn Einarsson bóndi á Kóreksstöðum. 
Þorkell Bjarnason bóndi á Klúku. 
Magnús Jónsson, Magnús Einarsson bændur á Hrollaugsstöðum 
Jórvík 20. júní 1884 
Eiríkur Vilhjálmsson 
Lesið fyrir manntalsþingsrétti að Hjaltastað, 2. júlí 1884 og innfært í landamerkjabók Norður 
Múlasýslu, bls. 51-52 
Einar Thorlacius 
Gjald til landsjóðs: 
a, þinglýsing kr. 0,75 
b, bókun kr. 0,25 
= kr. 1,00 – ein króna. 
ETh. 

[bls. án nr.] 
Endurrit 
úr landamerkjabók Norður-Múlasýslu.