Uppskrift
samkvæmt lögum 17. mars 1882
Landareign hennar er frá Merkjagarði, sem er milli jarðanna Minnibakka og Breiðabóls upp á
fjallsbrún og niður í Langá, sem rennur niður miðjan dalinn til sjávar. Langá skilur einnig merki
milli Meiribakka og Minnibakka. Minnibakki á fría sumarbeit á Breiðabóli, en Breiðaból fría
fjörubeit.
Jörðin Minnibakki á 1/5 úr öllum reka sem tilheyrir Breiðabóli.
Minnibakka 5. maí 1921
Benedikt Jónsson eigandi jarðarinnar.
Páll Jósúason Meiribakka eigandi að parti. Jón S. Magnússon eigandi í Breiðabóli.
Halldór H.G. Pálmason forráðamaður að parti í Breiðabóli
Aðeins tveir af eigendum Breiðabóls og annar eigandi Meiribakka hafa ritað samþykki sitt á
landamerkjaskrá þessa, einnig vantar að lýsa merkjum jarðarinnar á einn veg (Stigahlíð)
Bolungarvík 27 júní 1921
Jón Barðarson (hreppstjóri)
[á spássíu] Lesið á manntalsþingi í Bolungarvík 4/7 1922 Gjald 4 – fjórar – krónur