Uppskrift
Landamerki jarðarinnar Skógar í Auðkúluhreppi eru þessi:
Að austanverðu úr Ósárósi uppeftir ánni til óss Merkjalækjar. Þaðan eftir beinni sjónhendingu
í Örnólfsgilsgljúfur á fjallsbrún. Þaðan á fjall upp og út eftir fjallinu eftir því sem vötnum hallar
til skógalands að Þverlæk á brún, þaðan eftir beinni sjónhendingu í dý, sem er á milli bæjanna
Horns og Skóga rétt fyrir neðan veginn. Þaðan í svo nefnda Geil við Hornsá í flóanum. Því
næst ræður Hornsá merkjum til óss. Eftir sjónhendingunni eru hlaðnar vörður.
Skógum 18 febrúar 1922
Elías Júl. Eleseusson eigandi Skóga
Jón Þórðarson eigandi Skóga
Sigurður Guðmundsson eigandi Kirkjubóls
Þórarinn Guðmundsson eigandi Óss
Guðni Jóhannesson og Guðríður Einarsdóttir eigendur Horns.
[á spássíu] Lesið á manntalsþingi að Auðkúlu 11. júlí 1922. Gjald 4 – fjórar krónur –