Búð í Hnífsdal í Eyrarhreppi

Nr. 233,

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
um landamerki jarðarinnar Búð í Eyrarhreppi 4 hndr. f.m. að dýrleika samkvæmt lögum 17. 
marz 1882. Jörðinni Búð heyrir til frá túni og að Skarfaskeri sem slægjur eiga að heita. 
Stöðlapartur heirir og til Búð en er þó ofan til við Heimabæ. Skarnpartur heirir og til jörðinni 
Búð, en er þó ofanundan Hrauni upp að holtum og ofan að á líka heirir til ofangreindri jörð en 
er þó í Bakkalandi. Lambhagastikki að nafni Slægjur heyra nú ekki jörðinni meiri til en beit og 
öll önnur hlunnindi á hún að tiltölu jafnt Heimabæ 
Búð 26 Maí 1886 
Kristján Kjartansson 
Sigríður Øssursdóttir eigendur 
Kristja[na] Kjartansdóttir Halldór Jónsson 
Þorvarður Sigurðsson 
Fyrir hönd Guðnýjar Guðmundsdóttir 
Ólafur Gissursson 
[á spássíu] Innf. 26./7. 1920. Gjald 2. kr.
Kort