Uppskrift
Merki jarðarinnar eru, sem hér segir: Að utanverðu eptir Lambadalsá neðan frá sjó og fram
eptir dalnum allt þangað til Selá fellur í hana, en þar eptir ræður Selá allt upp í Tyrfingsskál.
En heimilt skal bændum Innri-Lambadals, að hafa til slægna, eins og að undan förnu, landið
milli Selár og Þverár í svokölluðum „Hólum“, móti því, að Ytri-Lambadalsmenn megi hafa
tveggja mánaða beit fyrir 60 sauðfjár á vetrum á innri Lambadalshlíð. Fjárhús skal þeim og
heimilt að byggja þar yfir fé sitt, og fá þar til torf og grjót, þar sem ekki er spillt slægjulandi.
Að innanverðu eru merkin í Strengberg uppi í fjallsbrúninni, og þaðan beina sjónhendingu til
fjöru, eins og klettur þessi vísar.
Þessi landamerki eru undirskrifuð og samþykkt af eigendum beggja jarðanna.
Mýrum 3. sept. 1891
Gísli Oddsson Jón Sæmundsson (handsalað) Eigendur Innri-Lambadals.
Guðrún Jónsdóttir Fr. Bjarnason Eigendur Ytri-Lambadals.
F. R. Wendel Eigandi í Botni.
[á spássíu] Innk. 9/1 1892
Borgun:
Þingl: 0,75
bók: 0,25
– ein króna –
borgað SkTh.