Uppskrift
Milli Látra og þjóðjarðarinnar Stakkadals eru merkin: úr Fimmþúfnaklakk og beina
sjónhending í þúfu neðan til við vatnið, og eru þar merki sett, svo eru merkin að ofan frá múla
fyrgreindum, og eru þar merki sett, stór steinn sem upphaflega var merkjasteinn, á hann er
hlaðið fimm steinum, síðan eru gjörð merki þaðan frá ofan í dálítinn bug ofan í krók á ánni
þaðan í sef við áarmynnið, og þar sett merkji, síðan eru merkin yfir og í fyrgreinda þúfu fyrir
neðan vatnið
Milli Látra og Rekavíkur eru merkin úr Hákjöl á Hvestu beint niður í stóru Hagaurð og
framanhalt úr urð þeirri og beint yfir vatnið í Grasdalsá; Látramegin við vatnið, og skilur nefnd
á fram nefndan dal í miðjan dalbotn inn, í efstu fjallsbrún og af dalbotni þeim beint vestur eptir
Látrafjalli í Ytri Kvíarhyrnu og beint niður í sjó í standklett þann er nefndur nefndur er Stapi
við framfjöru
Látrum 10 apríl 1891
Sigurður Gíslason fyrir hönd eiganda Látra
Merkjaskrá þessa samþykkir
Skúli Thoroddsen umboðsmaður Stakkadals og Rekavíkur
[á spássíu] Innk. 29 apríl 1891
Borgun
Þingl. 0,75
bókun 0,25
1,00
borgað Sk. Th.