Meiri-Hlíð í Bolungarvík

Nr. 146,

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
Landamerki á milli Meirihlíðar og Minnihlíðar að heimanverðu: (samhljóða merkjaskrá 
Minnihlíðar). Að framanverðu (sjá Minnihlíð) á milli Meirihlíðar og Traðar eptir sem 
Stekkjargil segir frá fjallsbrún og í stóran stein efst í engjunum, og þaðan sjónhending eptir 
merkjum niður að Hólsá. Reka og tolla að Hólsá. – Landamerki milli Meiri hlíðar og 
Þjóðólfstungu frá Minnihlíðarmerkjum allan dalinn, eptir því sem Tunguá segir fram á hærri 
Kross og heim í Þverá. 
Bolungarvík 12. maí 1890. 
Eigandi og umráðamaður Minnihlíðar: Jón Sæmundsson 
Eigandi að 2/3 úr Þjóðólfstungu: Jens Ólafsson. 
Sem fjárhaldsmaður Sigríðar dóttur minnar að 1/3: Kr. Halldórsson. 
Eigendur að Tröð: Kr. Halldórsson. Sigr. Helgadóttir. 
Eigendur að Meiri hlíð: Á.M. Árnason. Jón Þórðarson 
fyrir hönd Ásgeirsverzlunar á Ísafirði: Árni Jónsson. 
[á spássíu] Þinglýst að Hóli 19. júlí 1890 
Borgun: 
Þingl: 0,75 
bók: 0,25 
– ein króna – 
borgað SkTh.
Kort