Gerðhamrar í Dýrafirði

Nr. 103,

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
1, Að utanverðu milli Gerðhamra og Arnarness ræður áin fram eptir dalnum, síðan eptir 
læknum í miðjum tungunum, sem hann rennur, og svo sem lækurinn rennur fyrir ofan 
tungurnar, sem þeir fyrri menn hafa nefnt á, og eptir lægstu heiðunum allt út á hæðstu heiði, en 
þaðan svo sem brúnir ráða. 
2, Milli Gerðhamra og Alviðru ræður Míganda-lækur, sem í seinni tíð nefnist Miðlendis-lækur, 
eins og hann rennur beint upp eptir þangað, sem hann rennur fram úr bergi; þaðan ræður 
sjónhending beint á fjall upp. 
Mýrum 10. dec. 1889 
Guðný Guðmundsdóttir 
Guðbjörg Bjarnadóttir (Eigendur Gerðhamra) 
Þessa merkjaskrá samþykkjum við eigendur Arnarness: 
Gils Þórarinsson 
Pétur Bjarnason 
Bjarni H. Bjarnason. Jón Björnsson 
Eigendur Alviðru: 
G. Oddson G. Sakaríasdóttir. 
[á spássíu] Innk. 22/4 1890 
Þingl: 0,75 
bók: 0,25 
– ein króna – 
borgað SkTh.
Kort