Uppskrift
1, Að innanverðu ræður Kýrá upp á svonefnda Vatnahverk, og eptir því sem árfarvegurinn
vísar á fjall upp, og að neðanverðu eptir reiðgötunni út í Langalæk, síðan eptir því sem hann
rennur.
2, Að utanverðu milli Litla Garðs og Meira-Garðs ræður upphlaðið merki ofan til við
Langalæk, beina sjónhending í Milli-Garðslæk, síðan úr honum, eins og gilið segir, beina
sjónhending á fjall upp.
Mýrum 10. marz 1890.
G. H. Guðmundsson Eigandi Minni-Garðs og Mýra.
Guðný Guðmundsdóttir Eigandi Stóra-Garðs og Mýra.
[á spássíu] Innkomið 22/4 1890.
Þingl: 0,75
bókun: 0,25
– ein króna –
borgað SkTh.