Uppskrift
Skúli Thoroddsen, sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og umboðsmaður þjóðjarða í Sléttuhreppi
kunngjörir: Að landamerki Efri-Miðvíkur eru þessi: Til suðvesturs, suðurs og suðausturs ráða
fjallabrúnir, en að norðanverðu eru merki milli Efri- og Neðri-Miðvíkur á, sem breytist í ós,
þegar kemur ofan á flatlendið, og þá með sjó frá ósnum og í svokölluð Löngusker.
Til staðfestu er nafn mitt og embættisinnsigli
Skrifstofu Ísafjarðarsýslu 19. oct. 1889.
Skúli Thoroddsen umráðamaður Efri- og Neðri-Miðvíkur. (L.S.)
[á spássíu] Innk. 19. oct. 1889.
Borgun:
Þingl: 0,75
bók: 0,25
1,00 – ein króna –
borgað SkTh.