Uppskrift
Øllum mönnum, er þetta bréf sjá eður heyra, kunngjörist hérmeð, að eptir því sem gamlir og
gagnkunnugir menn hafa frá skýrt, þá eru þessi landamerki jarðarinnar Meðaldals í
Meðaldalsþinghá: Að utanverðu Merkishryggur beint í sjó niður í nes það, er gengur fram
utanvert við Helluvík; að innan ytri Þussaskálarönd beina sjónhending niður í Litla-Gildrunes.
Innan þessara takmarka á Meðaldalur land allt milli fjalls og fjöru fram í fremstu [d]aladrög.
Þess skal og getið, að jörðin Meðaldalur á skógarhögg í Botnsskógi í svokölluðum
Meðaldalsteig.
Meðaldal, 3. Júlí 1886.
Guðný Halldórsdóttir. Kristján Andresson
Sigríður Benóníardóttir. G. Guðbrandsson
Sem eigendur að jörðunum Haukasal og Hólum höfum vér ekkert á móti þessari merkjaskrá.
Eggert Magnússon. Ólafur Jónsson Þorvaldur Ingimundsson
[á spássíu] Þinglýst á manntalsþingi að Meðaldal 6./7. 1886. Sk. Thoroddsen
Borgun:
Þingl. 0,75
Bókun: 0,25
1,00 – ein króna –
Borgað Sk. Th