Uppskrift
Landamerki á Eyri og Tröðum eru að innanverðu í miðjan Grástein, sem stendur í miðjum
engjum, og vörðu á sjávarbakkanum og aðra við Urðarfætur og útí stein utan til við Grjótstekk
merktan L.M. og beina sjónhending til fjalls. Á Grjótdal allan dalinn frá þrísteinum í hlíðinni,
sem eru í röð, og í vörðu á engjunum og að ytri enda á Sortaugnaholti og beint niður í Uppsalaá,
og það allt stykki til fjalls, sem áin deilir.
Eyri, 9. Júní 1883.
Guðmundur Bárðason.
Hér til staðfestu eru okkar nábýlismanna undirrituð nöfn:
Hjalti Sveinsson.
Ari Guðmundsson Uppsölum
[á spássíu] Þinglesið á manntalsþingi í Súðavík 11/6 83. C. Fensmark
Borgun:
Þingl. 0,75
Bókun 0,25
– ein króna –
Borgað C.F.