Uppskrift
samin af tilkvöddum hlutaðeigendum í Ágústmánuði 1885.
Að norðanverðu Lynghólmur í Neðra-Selvatni, þaðan sjónhending í Smjörlág, úr Smjörlág
aptur sjónhending í vörðu norðaustanvert við Haugamýri, þaðan beina sjónhending í vörðu á
hæstu Keldubrún, og þá fram sem vötnum hallar eptir hálsinum í vestari enda á Kelduhjalla, þá
Kelduhjallarönd og í stóra steininn (Grástein) á Kelduhjalla, þaðan í fremra Neðra-vatnshornið.
St. P. Stephensen (pr. í Vatnsfirði) Gunnar Halldórsson (umráðamaður Keldu)
[á spássíu] Þinglýst á manntalsþingi að Reykjarfirði 8./6. 1885. Sk. Thoroddsen.
Borgun:
Þingl: 0,75
Bókun: 0,25
1,00 – ein króna –
Borgað Sk. Th.