Vatnsfjarðarsel í Reykjarfjarðarhreppi

Nr. 31,

(Ekki er hægt að opna bók á réttum stað þar sem blaðsíðutal vantar)

Uppskrift
hún var samin af tilkvöddum hlutaðeigendum í Ágústmánuði 1885. 
Að vestanverðu Heiðarlækur frá Fremra-Selvatni niður af Fremri-Grjóthól, þaðan í Smalaskála 
beina sjónhending í Yzta-Gufudalsmúlahöfuð. Þaðan út fyrir ofan Múlahvolf og Mjóudali útí 
Kistulágarlæk, svo hann í Ytra-Selvatn. Að neðanverðu vatnshornið og Stóri steinninn á 
Kelduhjalla, þá Háhæð í Miðaptansvörðu og svo eptir merkjavörðum í Karlmannaá, þar sem 
hún rennur úr Fremra-Selvatni. 
St. P Stephensen (pr. í Vatnsf.) Kr. Kristjánsson 
Kr. Kristjánsson fyrir hönd móður minnar, eiganda að hálfum Reykjarfirði. 
Guðni Jónsson 
G. Halldórsson. 
[á spássíu] Þinglýst á manntalsþing[i] að Reykjarfirði 8./6. 1886 Sk. Thoroddsen 
Borgun: 
Þingl. 0,75 
Bókun: 0,25 
1,00 – ein króna – 
Borgað Sk. Th.
Kort